Blátún 2

225 Garðabær

Ásett verð: 158.500.000 kr.

Blátún 2
Tegund
Einbýlishús
Stærð
220,900000762939 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
1978
Fermetraverð
717.519 kr.

Lýsing

Magnús Már Lúðvíksson og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallegt og vel skipulagt 220,9 fm 5. herbergja einbýlishús á tveimur hæðum á þessum vinsæla stað á Álftanesi ásamt rúmgóðum bílskúr.

Heildarstærð eignar er 220,9 fm sem skiptist þannig að neðri hæð er 106,7 fm, efri hæð 66 fm, (gólfflötur er stærri þar sem hluti er undir súð) og bílskúrinn er 48,2 fm.

Nýbúið er að skipta um járn og pappa á þaki ásamt því að mála húsið að utan að hluta.

Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is /

// 3 svefnherbergi

// Rúmgóðar stofur

// Stór bílskúr

// Skjólsæll garður

// Skólar, íþróttir og sundlaug í göngufæri

// Vel staðsett innan hverfis

Nánari lýsing:

Neðri hæð:

Anddyri: Flísar á gólfi, gólfhiti, fataskápur

Svefnherbergi: Innaf forstofu, parket á gólfi, rúmgott.

Hol: Flísar á gólf, opin og björt.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, gólfhiti, upphengt salerni, innrétting undir handlaug ásamt speglaskáp, sturtuklefi.

Eldhús: Flísar á gólfi, mjög gott skápa- og borðpláss, gashelluborð, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél, stæði fyrir tvöfalldan ísskáp, góður borðkrókur.

Þvottahús: Innaf eldhús, stæði fyrir þvottavél og þurrkara, hillur, innrétting, fínt borðpláss, skolvaskur, útgengt út í bakgarð.

Stofa/Borðstofa: Parket á gólfi, mjög rúmgóðar stofur með stórum gluggum og aukinni lofthæð að hluta.

Efri hæð:

Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgott, útgengt út á svalir

Fataherbergi: Parket á gólfi, fataskápar

Hol: Opið rými sem hentar fyrir skrifborð eða tölvuaðstöðu

Baðherbergi: Flísar á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu, salerni, innrétting undir handlaug, handklæðaofn, gluggi.

Herbergi: (Voru 2 herbergi) Parket á gólfi, mjög rúmgott.

Bílskúr: (48,2fm) Rúmgóður flísalagður bílskúr með stóri rafmagnshurð ásamt inngönguhurð að framan og aftan, búið er að byggja þak yfir gang á milli hússins og bílskúrs og nýtist það vel fyrir hjól og fleira.

Geymsla: Bakvið bílskúr, upphituð.

Bílaplan: Stórt og gott upphitað bílaplan

Útiskúr: Kaldur geymsluskúr fylgir með í kaupunum.

Garður: Fallegur skjólsæll garður, hellulagður, tyrftur og sjáfargrót sem gefur fallega heildarmynd af garðinu. Gott hellulagt útisvæði fyrir framan hús með markisum.

Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is