Bolholt 9
105 Reykjavík
Ásett verð: 94.000.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 91,6 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Fermetraverð
- 1.026.201 kr.
Lýsing
Fasteignamarkaðurinn ehf. sími 570-4500 kynnir til sölu glæsilega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 4. hæð, íbúð 0408, í 6 hæða nýbyggðu lyftuhúsi á frábærum stað við Bolholt 7-9 Reykjavík. Íbúðin er 91,6 fermetrar, þar af er geymsla 4,8 fermetrar. Bílastæði í upphituðum bílakjallara merkt B-11 fylgir eigninni.
Íbúðirnar í Bolholti 7-9, sem er vandað álklætt lyftuhús á Valhallarreitnum, eru allar með vönduðum íslenskum innréttingum frá Axis ásamt AEG eldhústækjum. Íbúðirnar afhendast án gólfefna nema í votrýmum, þ.e. baðherbergi og þvottaherbergi. Gólfhiti er í öllum íbúðum og lyfta er í húsinu ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Bílastæði í upphituðum bílakjallara fylgja flestum íbúðum og 49 bílastæði eru á sameiginlegri lóð. Það verða 47 íbúðir í húsinu auk verslunarrýmis.
Allar nánari upplýsingar og tímapantanir fyrir skoðun íbúða í húsinu er að fá á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.
Frekari upplýsingar má finna í skilalýsingu Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., sem má nálgast hjá fasteignasala.
Áætlað er að íbúðir við Bolholt 7-9 verði afhentar á tímabilinu febrúar 2026 – mars 2026. Bolholt 7 verður afhent í mars 2026 og Bolholt 9 verður afhent í febrúar 2026. Sameign, lóð og bílageymsla verða afhent samhliða afhendingu síðustu íbúða í Bolholti 7.
1. Frágangur íbúða innanhúss.
1.1. Gólfefni. Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og í þvottahúsi.
1.2. Veggir. Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af hvítri akrýlmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt. Á baðherbergi og í þvottahúsi eru veggir málaðir með viðurkenndri votrýmismálningu.
1.3. Loft. Steypt loft eru slípuð og slétt sandspartluð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af hvítri plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Loft á baðherbergi og í þvottahúsi er málað með viðurkenndri votrýmismálningu. Í ákveðnum íbúðum eru loft klædd gipsplötum, grunnuð, spartluð og máluð með tveimur yfirferðum af hvítri plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Á völdum stöðum í ákveðnum íbúðum á 4-6. hæð eru loft niðurtekin með hljóðdúk.
1.4. Gler. Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum BYKO glerframleiðanda. Við afhendingu íbúðar yfirtekur/taka kaupandi/kaupendur ábyrgð framleiðanda.
1.5. Sólbekkir. Sólbekkir verða þar sem við á úr plastlögðum spónaplötum.
1.6. Hurðir. Inngangshurð EI30-CS inn í íbúðina verður spónlögð. Innihurðir og rennihurðir fylgja þar sem við á en innihurðir verða yfirfelldar, sléttar og sprautulakkaðar hvítar. Inngangshurðir inn í íbúðir, innihurðir og rennihurðir eru frá Parka.
1.7. Fataskápar. Fataskápar eru í forstofu og í svefnherbergjum. Í sumum hjónaherbergjum eru fataherbergi ýmist með rennihurðum og/eða hefðbundnum skápahurðum. Innréttingar verða úr ljósu Melamin efni og koma frá Axis.
1.8. Eldhús. Eldhúsinnrétting verður úr ljósu Melamin efni og kemur frá Axis. Borðplötur verða plastlagðar og koma þær einnig frá Axis. Eldhúsvaskur og blöndunartæki frá Tengi fylgja, ásamt helluborði með gufugleypi eða helluborði með innbyggðum gufugleypi þar sem við á. Einnig mun fylgja ofn með blæstri, innbyggð uppþvottvél með áklæddri framhlið og innbyggður kæliskápur með frysti. Raftæki sem fylgja koma frá Ormsson.
1.9. Baðherbergi. Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft, flísar koma frá Parka. Baðherbergis innrétting verður úr ljósu Melamin efni og kemur frá Axis. Borðplötur verða plastlagðar og koma þær einnig frá Axis. Á baðherbergi verða ýmist speglaskápar eða speglar eftir því sem við á. Gert er ráð fyrir niðurfalli í gólfi. Handlaug, handlaugartæki og handklæðaofnar fylga þar sem við á ásamt innbyggðu, upphengdu salerni með hæglokandi setu og innbyggt sturtutæki verður í sturtu. Baðherbergis tæki koma frá Tengi. Sturtubotn verður flísalagður. Gert er ráð fyrir sturtuhlið eða sturtuklefa úr gleri, eða innangengt sturturými eftir því sem við á.
1.10. Þvottahús. Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innrétting verður úr hvítu Melamin efni og kemur frá Axis. Borðplötur verða plastlagðar með ræstivask og blöndunartæki frá Tengi. Ekki eru ræstivaskar í þeim íbúðum sem eru með sameiginlegt bað og þvottahús. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottvél og þurrkara. Gert er ráð fyrir barka-/útblásturslausum þurrkara. Veggir eru grunnaðir og málaði með hvítri viðurkenndri votrýmis málningu.
1.11. Sérgeymsla. Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð eða lögð epoxy efni þar sem við á. Skilveggir á milli geymslna eru ýmist, steyptir, hlaðnir eða með timburgrind og málaðri plötuklæðningu. Geymslugangar verða ýmist málaðir eða lagðir epoxy efni. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.
1.12. Hitakerfi. Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi samkvæmt teikningum. Ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verður búið hitastýðrum lokum.
1.13. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
1.14. Rafmagns- og sjónvarpslagnir. Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Tölvutenglar verða í alrými og í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Innfelld lýsing í alrými (stofu og eldhúsi) er dimmanleg.
2. Frágangur sameignar.
2.1. Anddyri og stigahús. Steyptir innveggir í sameign og geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangur eru sandsparslaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af ljósri plastmálningu. Anddyri er flísalagt með uppsettum póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigar og stigapallar eru teppalagðir en það er gert nokkru eftir að íbúðareigendur hafa flutt inn. Stigahlaup að kjallara er flísalagt og brunastúkur. Á stigum og pöllum eru uppsett handrið. R…