Sléttahraun 25

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 62.900.000 kr.

Sléttahraun 25
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
84,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1966
Fermetraverð
745.261 kr.

Lýsing

Hraunhamar fasteginasala kynnir: Falleg og björt þriggja herbergja 84,4 fm. íbúð á 1. hæð á vinsælum stað í fjölbýli við Sléttahraun 25 Hafnarfirði. Frábær staðsetning, miðsvæðis og örstutt í skóla, verslanir, þjónustu, stofnbrautir ofl.

Íbúðin sjálf er skráð 77,8 fm. og skiptist í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús, björt stofa- og borðstofa með útgengt út á s-svalir, baðherbergi og sameiginlegt þvottahús á sömu hæð með þægilegu aðgengi. Sérgeymsla 6,6 fm. er staðsett í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu. Húsið var sprunguviðgert og málað 2019 og einnig var skipt um glugga og gler að hluta. Skipt var um teppi í sameign og málað 2023.

Nánari lýsing:

Forstofa er flísalögð með opnum fataskáp.

Eldhús er flísalagt með fallegri hvítri innréttingu, flísar á milli skápa. Helluborð og ofn í vinnuhæð. Uppþvottavél og ísskápur geta fylgt. Stór og bjartur opnanlegur gluggi.

Svefnherbergin eru tvö, mjög rúmgóð og opnir fataskápar eru í hjónaherbergi. Harðparket á gólfum

Stofa- og borðstofa er í opnu og björtu rými með útgengt út á suðvestur svalir. Parket á gólfum.

Baðherbergi er með sturtubaðkari og hvítri vaskinnréttingu. Góður opnanlegur gluggi og flísalagt er í hólf og gólf.

Sameiginlegt þvottaherbergi á hverri hæð og því aðeins 3 íbúðir með hvert þvottaherbergi.

Aðgengi íbúðar að þvottaherbergi á hæð er mjög gott.

Sérgeymsla er staðsett í sameign um 6,6 fm. með glugga og rafmagni og einnig er hjóla- og vagnageymsla staðsett í sameign.

Garður er sameiginlegur, stór og gróinn með leiktækjum.

Skv. eignaskiptayfirlýsingu fylgir íbúðinni réttur til byggingar bílskúrs.

Samkv. uppl. seljenda:

Ofnar íbúðar voru yfirfarnir og skipt um ofn í barnaherbergi. Skipt hefur verið um rafmagnstengla og rofa að hluta. Húsið var sprunguviðgert og málað 2019 og einnig var skipt um glugga og gler að hluta. Skipt var um teppi í sameign og málað 2023. Þak var yfirfarið 2018 og talið í lagi. Nýlegar innihurðar síðan 2024. Nýlegt harðparket síðan 2024. Nýlegur forstofuskápur síðan 2024.

Þetta er áhugaverð góð eign miðsvæðis í bænum sem vert er að skoða frekar. !

Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og

Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda :

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.