Ránargata 4

101 Reykjavík

Ásett verð: 49.900.000 kr.

Ránargata 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
47,6 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1947
Fermetraverð
1.048.319 kr.

Lýsing

Sunna fasteignasala kynnir: Fallega og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð við Ránargötu 4. Eignin sem er skráð samkvæmt HMS 47,6 fm. Íbúðin skiptist í gang/miðrými, stofu,svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Sér geymsla á jarðhæð. Nýlega er búið að Skipta um parket og hurðar innan íbúðar ásamt eldvarnarhurð inn í íbúð.

Nánari lýsing:

Anddyri/miðrými: Komið er inn í parketlagt miðrými þaðan sem gengið er til annarra rýma íbúðarinnar.

Stofa: Parketlögð með stórum glugga sem hleypir birtu inn.

Eldhús: paketlagt með snyrtilegri eldri innrétting með hvítri borðplötu. niðurfellanlegt lítið borð tvo til þrjá stóla.

Svefnherbergi: Svefnherbergi er rúmgott með fataskápum.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtu með sturtugleri.

Eignin er á vinsælum stað í miðbænum og stutt í alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Arnþór Jónsson löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur. í síma 663 3030 og netfanginu arnthor@sunnafast.is.