Nesvegur 11

420 Súðavík

Ásett verð: 25.000.000 kr.

Nesvegur 11
Tegund
Sumarhús
Stærð
183,799998474121 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1980
Fermetraverð
136.017 kr.

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] kynnir til sölu - Nesvegur 11 Súðavík - Sumarhús í gamla bæ Súðavíkur. Einbýlishús á einni hæð með bílskúr, húsið er skráð 145,7 m² að stærð og bílskúr 38,1 m².

Forstofa með flísum á gólfi, fataskápur.

Þvottahús inn af forstofu, útgangur þar út í garð.

Gangur með parketi, stór stofa og borðstofa með parketi, útgengt á góðan sólpall.

Eldhús með hvítri innréttingu, parket á gólfi, uppþvottavél og ísskápur fylgir, parket gólfi.

Baðherbergi með hvítri innréttingu, baðkar og sturta, flísar á gólfi.

Fjögur ágæt svefnherbergi með parketi á gólfum og fataskápum.

Úr forstofu er innangengt í bílskúr sem er skráður 38,1 m² stærð, þar er steypt málað gólf og bílskúrshurð með rafmagnsopnun, innrétting og hillur, gott geymslupláss.

Gróinn garður og steypt bílastæði.

Athugið að innbú eignar getur fylgt með í kaupum fyrir utan persónulega muni seljenda.

Athugið eignin stendur á skilgreindu snjóflóðahættusvæði, dvöl í húsinu því er óheimil frá 1.nóvember til 30 apríl ár hvert.