Skólavellir 10
800 Selfoss
Ásett verð: 59.800.000 kr.

- Stærð
- 154,899998474121 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1958
- Fermetraverð
- 386.056 kr.
Lýsing
Skólavellir 10 efri hæð, Selfossi. Í einkasölu.
Frábær staðsetning. Stutt er í alla þjónustu s.s skóla, sundlaug og verslanir.
Um er að ræða 121,3 fm. íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt 33,6 fm. bílskúr, samtals 154,9 fm . Að innan skiptist eignin í þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu, hol, eldhús og baðherbergi auk þess er geymsla og sameiginlegt þvottahús í kjallara. Lóðin er vel gróin og snýr til suðurs
Nánari lýsing:
Íbúðin er með sérinngangi og stiginn upp er nýlega teppalagður.
Þrjú svefnherbergi: Svefnherbergin eru öll með harðparketi á gólfi.
Eldhús: Harðparket er á gólfi í eldhúsi og þar er ný innrétting með innfelldri uppþvottavél og ísskáp.
Stofa: Harðparket á gólfi og útgengt á svalir sem snúa til suðvesturs.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt, þar er sturtuklefi, salerni og hvít innrétting með vaski.
Þvottahús og sérgeymsla er í kjallara.
Bílskúrinn er með álflekahurð.