Melabraut 12
170 Seltjarnarnes

- Stærð
- 95,2 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2020
Lýsing
LIND fasteignasala og Elías Haraldsson löggiltur fasteignasali kynnir til sölu : mjög glæsilega 95,2 fermetra 3ja. herbergja íbúð á 1.hæð (jarðhæð) með sér inngangi í mjög fallegu nýlegu (hús byggt 2020) 4ra. íbúða húsi. Sér inngangur í allar íbúðir. extra lofthæð, gólfsíðir gluggar, gólfhiti, þvottahús innan íbúðar. afgirtur sólpallur til suðurs. Sérmerkt upphitað bílastæði.
Eignin skiptist : forstofa/anddyri, þvottahús, geymsla, hjónaherbergi, barnaherbergi, eldhús og stofa.
Nánari lýsing :
Forstofa/anddyri : parketlagt með góðum fataskáp.
Þvottahús : flísar á gólfi, góð innrétting með efri og neðri skápum, skolavaskur.
Geymsla : epoxy á gólfi og góðar hillur.
Hjónaherbergi : parketlagt með góðu fataherbergi inn af.
Barnaherbergi : parketlagt með góðum fataskáp.
Eldhús : parketlagt, með fallegri hvítri innréttingu með eyju. stórt span helluborð með gufugleypir. Ofn í vinnuhæð.
Stofa : parketlögð með borðstofu og sjónvarpsaðstöðu. Útgangur út á suður verönd.
Sameign . er nánast engin bara sameiginleg lóð og hús sem er í mjög góðu ástandi (byggt 2020).
Lóð : Mjög snyrtileg með upphituðum göngustígum og bílaplani. Sér afgirtur suður sólpallur .
Hús að utan : mjög fallegt lágreist 4ra. íbúða nýlegt hús með fallegri álklæðningu.