Hamarsgata 12

750 Fáskrúðsfjörður

Ásett verð: 36.000.000 kr.

Hamarsgata 12
Tegund
Einbýlishús
Stærð
192,1 m²
Herbergi
9
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Byggingarár
1957
Fermetraverð
187.402 kr.

Lýsing

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lf-fasteignasala.is kynna:

Hamarsgata 12, Fáskrúðsfirði, Fjarðabyggð.

Rúmgott einbýlishús með aukaíbúð á neðri hæð. Íbúðin á neðri hæðinni þarfnast endurnýjunar.

Húsið stendur á flottum útsýnisstað við rólega botnlangagötu.

Í aðalíbúðina er gengið inn í forstofu á efri hæð.

Eldhúsið er rúmgott með borðkrók og góðri eldri innréttingu.

Alls eru 5 svefnherbergi á hæðinni en eitt mjög lítið.

Baðherbergið er rúmgott, flísalagt með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél.

Nokkrar geymslur eru á hæðinni.

Sér inngangur er í íbúðina á neðri hæðinni. Íbúðin þarfnast endurbóta.

Þvottahús er á neðri hæðinni ásamt geymslum og snyrtingu.

Endurskipuleggja mætti neðri hæðina og stækka íbúðina á kostnað geymslurýmanna sem nóg er af á báðum hæðum.

Einnig er mjög gott og snyrtilegt risloft yfir öllu húsinu sem getur nýst sem geymsla eða að nýta mætti það sem hluta af íbúðinni.

Gluggar á neðri hæð eru upprunalegir en skipt var um glugga á efri hæð fyrir einhvejrum árum og hafa þeir og þak hússins fengið gott viðhald.

Húsið er klætt að utan með pvc klæðningu.