Neshagi 9

107 Reykjavík

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Neshagi 9
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
81,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1953
Fermetraverð
861.899 kr.

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir:

Björt og vel skipulögð 3ja herbergja endaíbúð á frábærum stað í Vesturbænum. Íbúðin er á jarðhæð skv, HMS skráð alls 81,1 fm.

Um er að ræða bjarta og skemmtilega þriggja herbergja endaíbúð á jarðhæð á einum eftirsóttasta stað Reykjavíkur.

Nánari lýsing:

Eigning skiptist í forstofu/gang, tvö rúmgóð svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, tvær sérgeymslur við inngang í íbúð, sameiginlegt þvottahús og hlutdeild í sameign.

Komið er inn á gang með parketi á gólfi. Eldhúsið er snyrtilegt með fallegri hvítri innréttingu, gleri á milli efri og neðri skápa, parketi á gólfi og góðum borðkrók.

Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með parketi á gólfi og fataskápum. Stofan er björt og með parketi á gólfi.

Baðherbergið er flísalagt, með baðkari og sturtuaðstöðu.

Tvær sérgeymslur fylgja íbúðinni við inngang hennar og sameiginlegt þvottahús er í sameign.

Frábær staðsetning í Vesturbænum, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, kaffihús, útivistarsvæði og miðbæ Reykjavíkur. Eign á eftirsóttum stað í 107 Reykjavík.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali, í síma 788 9030 , ulfar@fastborg.is