Snægil 15 íbúð 102

603 Akureyri

Ásett verð: 58.900.000 kr.

Snægil 15 íbúð 102
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
78,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1995
Fermetraverð
750.318 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Snægil 15 íbúð 102 - Skemmtileg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli í Giljahverfi stærð 78,5 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu. Sameiginleg geymsla er á hæðinni.

Forstofa er með flísum á gólfi og þreföldum skáp.

Eldhús , flísar á gólfi og hvít máluð innrétting grárri bekkplötu. Stæði er í innréttingu fyrir uppþvottavél og ísskáp.

Stofan er björt, með gluggum til þriggja átta og hurð út á timbur verönd með timbur skjólveggjum. Plastparket er á gólfi.

Svefnherbergin eru tvö , bæði með plastparketi á gólfi. Stór hvítur fataskápur er í öðru herberginu.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Svört máluð innrétting, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla er með plastparketi á gólfi og opnanlegum gluggi. Möguleiki er að nota þetta rými sem lítið barnaherbergi.

Sameiginleg geymsla er á hæðinni.

Annað

- Búið er að endurnýja dyrasíma.

- Vel staðsett eign - stutt í leik og grunnskóla.

- Timbur verönd.

- Eignin er laus til afhendingar í haust, sept/okt.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.