Norðurgata 12

580 Siglufjörður

Ásett verð: 55.000.000 kr.

Norðurgata 12
Tegund
Einbýlishús
Stærð
172,6 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1915
Fermetraverð
318.656 kr.

Lýsing

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Norðurgata 12, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0796 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Norðurgata 12 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0796, birt stærð 172.6 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.

Um er að ræða mikið endurnýjað þriggja hæða einbýlishús með stórum palli staðsett í miðbæ Siglufjarðar. Eignin samanatendur af forstofu, eldhúsi, stofu, fjórum svefnherbergjum, baðherbergi, gestasalerni og kjallara. Gengið er inn í mjög rúmgóða forstofu á miðhæð eignarinnar. Miðhæð samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og gestasalerni. Útgangur er út á pall úr svefnherbergi og baðherbergi. Efri hæð samanstendur af þremur svefnherbergjum og geymslu. Útgangur er út á efri pall úr einu svefnherbergjanna. Kjallari er steyptur og er hólfaður niður í rými. Útgangur er út úr kjallara á bak við eignina. Búið er að endurnýja glugga og þak eignarinnar.

Forstofa: er mjög rúmgóð með góðu skápaplássi og parket á gólfi.

Eldhús: er með góðu skápaplássi, borðkrók og parket á gólfi.

Stofa: er með góðu gluggaplássi og parket á gólfi.

Baðherbergi: er með rakaþolnum plötum á gólfi, frístandandi sturtuklefa, salerni, vask og innréttingu. Útgangur er út á pall og heitan pott. Þvottaaðstaða er inn á baðherbergi. Einnig er gestasalerni á miðhæð með salerni og vask.

Svefnherbergi: eru í heildina fjögur ef frá er talið svefnrými í kjallara.

Pallur: er sunnan megin við eignina með heitum potti, skjólveggjum og geymsla er undir palli.

Garður: er bakvið eignina og er að hluta til graslagður.

Betri Stofan - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð.