Strikið 8

210 Garðabær

Ásett verð: 99.900.000 kr.

Strikið 8
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
111,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2006
Fermetraverð
895.161 kr.

Lýsing

Björt og rúmgóð þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í Sjálandshverfi í Garðabæ í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri sem vert er að skoða. íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, samliggjandi stofu og borðstofu, sérþvottahúsi og suðursvölum með glerlokun. Eigninni fylgja sérgeymsla og stæði í bílageymslu. Hlýlegar viðarinnréttingar og stórir gluggar setja svip á íbúðina og opin tenging eldhúss og stofurýmis skapar skemmtilega heild.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er birt stærð eignarinnar 111,6 m². Þar af er íbúð 106,8 m² og sérgeymsla 4,8 m². Svalir eru skráðar 7,7 m² og eru ekki hluti af birtri stærð. Húsvörður er í húsinu. Húsið er steinsteypt og byggt árið 2006 af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars. Samkomusalur í eigu húsfélagsins er í húsinu sem eigendur geta nýtt.

Nánari lýsing:

Forstofa og hol: Komið er inn í hol með góðum fataskápum.Þaðan er aðgengi að herbergjum og sameiginlegum íverurýmum íbúðarinnar.

Stofa og borðstofa: Bjart og opið rými með stórum gluggum og parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á yfirbyggðar svalir.

Eldhús: Opið að borðstofu og stofu. Viðarinnrétting með efri og neðri skápum og flísum á milli skápa. Helluborð og háfur yfir því. Lág skilveggseining afmarkar eldhúsið gagnvart borðstofurými og stofu.

Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með stórum glugga, fataskápum í viðarlit og parketi á gólfi.

Svefnherbergi: Með glugga og parketi á gólfi. Rýmið getur einnig nýst sem vinnuherbergi eða gestaherbergi.

Baðherbergi: Innrétting með handlaug og spegli. Flísar á gólfi og veggjum.Sturtuklefi og handklæðaofn.

Geymsla / vinnuherbergi: Gluggalaus. Innan íbúðar, með parketi á gólfi. Nýtist vel sem skrifstofa, tómstundaherbergi eða aukaherbergi.

Þvottahús: Sérstakt þvottarými inn af eldhúsi með skápum, vinnuborði og vaski.

Svalir: Gengið er úr stofu út á svalir með glerlokun sem veitir skjól og eykur notagildi þeirra. Svalir eru skráðar 7,7 m² hjá HMS.

Geymsla og bílastæði. Sérgeymsla í kjallara er skráð 4,8 m². Eigninni fylgir stæði í bílageymslu þar sem búið er að gera ráð fyrir rafhleðslustöð.

Sameign: Einkar snyrtileg, vel við haldið og húsvörður er starfandi fyrir íbúa að Strikinu 2-12. Næg bílastæði eru á sameiginlegri lóð.

Húsið og nærumhverfið: Strikið er í Sjálandshverfinu í Garðabæ. Í næsta nágrenni er Jónshús við Strikið 6, þar sem Garðabær og Félag eldri borgara í Garðabæ standa fyrir félagsstarfi. Umhverfis húsið er falleg lóð sem hefur fengið viðurkenningu frá Garðabæ. Stutt er í alla þjónustu og fallegar gönguleiðir eru við sjávarsíðuna.

Allar upplýsingar veita Börkur Hrafnsson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 892-4944. tölvupóstur borkur@fastborg.is og Ingimar Ingimarsson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 8618458, tölvupóstur ingimar@fastborg.is.