Kjarnagata 51 íbúð 208
600 Akureyri
Ásett verð: 61.500.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 81,5 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2020
- Fermetraverð
- 754.601 kr.
Lýsing
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Kjarnagata 51 íbúð 208 - Nýleg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli með lyftu - stærð 81,5 m²
Eigninni fylgir sér stæði í bílageymslu og sér geymsla í kjallara.
**Mjög góð fyrstu kaup**
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Forstofa og gangur eru með vínyl parketi á gólfi og opnu hengi.
Eldhús , vínyl parket á gólfi og vönduð tvílit innrétting með flísaþiljum á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir uppþvottavél og ísskáp. Borðkrókur með glugga til vesturs.
Stofa er ágætlega rúmgóð, með vínyl parketi á gólfi og rennihurð út á steyptar og yfirbyggðar 6,9 m² svalir.
Svefnherbergin eru tvö , bæði ágætlega rúmgóð, með vínyl parketi á gólfum og góðum fataskápum. Sexfaldur fataskápur er í hjónaherbergi og tvöfaldur í barnaherbergi. Stærð herbergja er skv. teikningum 9,3 og 12,5 m².
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja og vandaðri tvílitri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Upphengt wc og sturta með glerhurðum.
Í kjallaranum er sér geymsla skráð 5,8 m² að stærð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallaranum með góðu aðgengi.
Annað
- Vínyl parket er á öllum gólfum íbúðar nema baðherbergi.
- Hljóðdempandi plötur eru í loftum í felstum rýmum.
- Loftskiptikerfi
- Mynd-dyrasími
- Gólfhiti er í íbúðinni.
- Eignin er í einkasölu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.