Áshamar 52

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 72.900.000 kr.

Áshamar 52
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
93,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Fermetraverð
783.029 kr.

Lýsing

Falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Áshamar 52 í Hafnarfirði.

Eignin skiptist þannig að íbúðin er 89,4 fm og geymsla 3,7 fm, alls 93,1 fm skv. fasteignaskrá.

Nánari lýsing:

Forstofa með flísum á gólfi og skáp.

Eldhús og stofa í björtu alrými með útgengt út á sérafnotaflöt sem snýr vel við sólu.

Eldhús með hvítri innréttingu. ofn í vinnuhæð, helluborð á eldunartanga með viftu. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp.

Hjónaherbergi rúmgott með góðum skápum.

Tvö barnaherbergi með skápum. Búið að smíða koju með leikrými undir í annað herbergið.

Baðherbergi með sturtu, vaskinnréttingu, handklæðaofn, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.

Stæði fyrir þvottavél og þurrkara er inni á baðherberginu.

Sér geymsla í kjallara sem er 3,7 fm.

Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla í sameign.

Sameiginlegt bílastæði með átta hleðslustöðvum sem eigendur geta nýtt sér.

- Gólfefni íbúðar er parket fyrir utan votrými sem eru flísalögð.

- Gólfhiti er í íbúðinni,

- Hönnuður hússins er Guðni Pálsson (GP Arkitektar ehf.)

- Sérsmíðaðar innréttingar frá Axis.

- Spanhelluborð og bakaraofn frá AEG ásamt eyjuháf.

Góð staðsetning í Hamranesinu þar sem stutt er í skóla, leikskóla , fallegar gönguleiðir og útvistarperlur.

Verslanir eins og Bónus, Krónan og Nettó í hverfinu ásamt apóteki og annarri þjónustu,líkamsrækt og sundlaug.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

[link]

[link]

[link]