Hafnarbraut 12a
200 Kópavogur
Ásett verð: 72.400.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 79,4 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2020
- Fermetraverð
- 911.839 kr.
Lýsing
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir 2-3 herbergja glæsilega og vandaða íbúð í nýlegri lyftublokk á 2.hæð ásamt stæði í bílageymslu við við Hafnarbraut 12A í Vesturbæ Kópavogs. Stórar svalir sem snúa inn í i fallegan inngarð. Sérinngangur frá svalagangi.
Nánari lýsing eignar.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með harðparketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Inn af forstofu er baðherbergi, gólf er flísalagt ásamt hluta veggja. Þvottavéla aðstaða er á baðherbergi og skápar upp í loft. Hvít baðinnrétting er með góðu skúffuplássi, með hvítri borðplötu og niðurfeldri handlaug, sturta er með glerskilrúmi, vegghengt salerni. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Eldhús, borðstofa, stofa með parketi á gólfi, eldhúsinnrétting er hvít með stál höldum og nær upp í loft, AEG bakarofn í vinnuhæð og innbyggður ísskápur, hvít eyja með helluborði, stál háfur/vifta með ljósi er yfir eyju. Eldhús er opið við borðstofu og stofu. Frá stofu er gengið út á stórar skjólgóðar svalir.
Hjónaherbergi með parketilögðu gólfi með hvítum fataskápum á heilum vegg.
Geymsla ( en notað sem barnaherbergi ) með parketi á gólfi og stórum glugga með opnanlegu fagi.
Stæði í bílageymslu merkt N 34
Þetta er afar falleg vel skipulögð íbúð á vinsælum stað í vesturbæ Kópavogs. Brikk bakarí og Brasserie Kársnes eru í næsta húsi. Örstutt frá sjónum og í göngufæti við Sky lagoon böðin. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is