Sementsbraut 15 íbúð 101

300 Akranes

Ásett verð: 76.569.500 kr.

Sementsbraut 15 íbúð 101
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
91,7000003814697 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2026
Fermetraverð
835.000 kr.

Lýsing

Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.

Valfell fasteignamiðlun og Nova Progressus ehf kynna: Sementsbraut 15 og sýningaríbúð á 3. hæð. ( íbúð 305 ) Öllum íbúðum fylgir stæði í bílakjallara.

Bjóðum upp á einkaskoðun samkvæmt samkomulagi.

Um er að ræða sérlega glæsilegt 3ja hæða lyftuhús við Sementsbraut 15 sem verður tilbúið til afhendingar í sept. 2026. Húsið stendur í nýjasta nýbyggingarhverfi Akraness og er hannað með áherslu á gæði, gott skipulag og vandað efnisval.

Í fyrri áfanga eru 15 íbúðir til sölu, 2ja og 3ja herbergja, og allar skilast fullbúnar með gólfefnum. Öllum íbúðum fylgir bílastæði í sameiginlegum bílakjallara.

Íbúðir á efstu hæð eru með aukinni lofthæð og hljóðeinangrandi dúk í lofti.

Íbúð 101 er glæsileg og fallega hönnuð 91,7 fm. 3ja herbergja endaíbúð á 1. hæð með hornsvölum sem snúa i suðaustur, stæði í bílakjallara og sérgeymslu.

Íbúðin er sérstaklega skemmtilega hönnuð, ekki hefðbundin í laginu, sem gefur henni karakter og mikla birtu.

Hljóðvistardúkur í lofti og aukin loftæð gefa íbúðinni aukin þægindi og sjarma.

Eldhús og stofa í björtu alrými með útgengi á svalir

Eldhús með fallegri innréttingu, spanhelluborði og kæli‑/frystiskáp

Tengi fyrir uppþvottavél

Tvö svefnherbergi, bæði með fataskápum

Baðherbergi flísalagt, opinn sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn

Forstofa með fataskáp

Sjá nánar á sölusíðu Með því að smella hér

· Timbur‑ál gluggar og útihurðir. Roda frá Litháen

· Klæðning utan húss: Cembrit trefjaplötur, álklæðning frá Áltak, bandsöguð furuklæðning og tíglaklæðning úr áli.

· Allar meginleiðir við húsið eru með snjóbræðslu, þar á meðal rampur niður í bílakjallara.

· Í bílakjallara er búið að leggja fyrir dreifiboxum fyrir hleðslustöðvar. Hitablásarar.

· Lóð er frágengin með hellum, munstursteypu, gúmmíhellum, gróðri og blandaðri útilýsingu.

· Djúpgámar eru á lóðinni.

· Í bílakjallara er aðgengi að sérgeymslum, sameiginlegri hjóla‑ og vagnageymslu ásamt tæknirými.

Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is