Sementsbraut 15 íbúð 103

300 Akranes

Ásett verð: 59.702.500 kr.

Sementsbraut 15 íbúð 103
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
71,4999998092651 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2026
Fermetraverð
835.000 kr.

Lýsing

Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.

Valfell fasteignamiðlun og Nova Progressus ehf kynna: Sementsbraut 15 og sýningaríbúð á 3. hæð. ( íbúð 305 ) Öllum íbúðum fylgir stæði í bílakjallara.

Bjóðum upp á einkaskoðun samkvæmt samkomulagi.

Um er að ræða sérlega glæsilegt 3ja hæða lyftuhús við Sementsbraut 15 sem verður tilbúið til afhendingar í sept. 2026.. Húsið stendur í nýjasta nýbyggingarhverfi Akraness og er hannað með áherslu á gæði, gott skipulag og vandað efnisval.

Í fyrri áfanga eru 15 íbúðir til sölu, 2ja og 3ja herbergja, og allar skilast fullbúnar með gólfefnum. Öllum íbúðum fylgir bílastæði í sameiginlegum bílakjallara.

Íbúðir á efstu hæð eru með aukinni lofthæð og hljóðeinangrandi dúk í lofti.

Íbúð 103 er fallega hönnuð 71,5 fm. 2ja herbergja á 1. hæð með suðaustur-svölum, stæði í bílakjallara og sérgeymslu.

Íbúðin skiptist í

Eldhús og stofa í björtu alrými með útgengi á svalir

Eldhús með fallegri innréttingu, spanhelluborði og kæli‑/frystiskáp, tengi fyrir uppþvottavél

Eitt svefnherbergi með fataskáp

Baðherbergi flísalagt, opinn sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn

Forstofa með fataskáp

Sjá nánar á sölusíðu Með því að smella hér

· Timbur‑ál gluggar og útihurðir. Roda frá Litháen

· Klæðning utan húss: Cembrit trefjaplötur, álklæðning frá Áltak, bandsöguð furuklæðning og tíglaklæðning úr áli.

· Allar meginleiðir við húsið eru með snjóbræðslu, þar á meðal rampur niður í bílakjallara.

· Í bílakjallara er búið að leggja fyrir dreifiboxum fyrir hleðslustöðvar. Hitablásarar.

· Lóð er frágengin með hellum, munstursteypu, gúmmíhellum, gróðri og blandaðri útilýsingu.

· Djúpgámar eru á lóðinni.

· Í bílakjallara er aðgengi að sérgeymslum, sameiginlegri hjóla‑ og vagnageymslu ásamt tæknirými.

Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is