Sigtún 35

105 Reykjavík

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Sigtún 35
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
91,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1948
Fermetraverð
819.475 kr.

Lýsing

Valhöll og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali s. 777-2882 kynna mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi í snyrtilegu fjórbýlishúsi miðsvæðis í Reykjavík. Eignin er skráð 91,4 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, þar eru allir fermetrar innan íbúðarinnar og skipulag gott.

Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum þar með talið er nýtt eldhús, gólfefni og gólfhiti í eldhúsi og forstofu, baðherbergi endurnýjað og skipt um glugga í íbúð. Húsið sjálft hefur fengið gott viðhald í gegnum árin m.a. verið endurnýjað þak, þakkantur, ytra byrði endursteinað ofl. Frábær staðsetning í jaðri Laugardalsins, stutt er í skóla og leikskóla, Laugardalslaugina, líkamsrækt og öflugt barna- og unglingastarf Þróttar.

Nánari lýsing:

Forstofa er rúmgóð með fatahengi, flísum á gólfi og gólfhita.

Stofa björt og rúmgóð með vínylparketi á gólfi.

Eldhús var endurnýjað árið 2024, þar er mikið hirslupláss, tækjaskápur með rafmagni, innbyggð uppþvottavél og rúmgóður borðkrókur, á gólfi er vínilparket og gólfhiti.

Svefnherbergisálma er aðgreind með rúmgóðum gangi/holi með nýjum skápum og vínylparketi á gólfi. Hjónaherbergi rúmgott með nýjum skápum og vínylparketi á gólfi. Svefnherbergi með vínylparketi á gólfi.

Baðherbergi er endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf með snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu, handklæðaofni og glugga með opnanlegu fagi.

Geymsla er innan íbúðar. Sameiginlegt þvottahús er í sameign hússins á hæð íbúðar.

Endurbætur innan íbúðar:

2025 Skipt um glugga íbúðarinnar

2024 Skipt um gólfefni: flísar á forstofu og baðherbergi, vínylparket á öðrum rýmum. Ný eldhúsinnrétting, nýir skápar í holi og hjónaherbergi, og gólfhiti lagður í forstofu og eldhús.

Viðhald á húsinu í gegnum árin:

2023 – Vatns- og frárennslislagnir yfirfarnar (endurnýjaðar 2005).

2022 – Þak hússins endurnýjað

2017 – Húsið tekið í gegn að utan með steypuviðgerð og endursteiningu, og þakkantur steyptur upp á nýtt. Stigagangur teppalagður og málaður.

2014 – Skólp og dren endurnýjað og garðurinn tekinn í gegn.

Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@valholl.is