Austurtún 15

700 Egilsstaðir

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Austurtún 15
Tegund
Raðhús
Stærð
96 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
676.042 kr.

Lýsing

Austurtún 15 (15c), Egilsstöðum: Glæsileg og fullbúin 3ja herbergja íbúð á einni hæð í fjögurra íbúða raðhúsi í Votahvammshverfi, nýju og fjölskylduvænu íbúðahverfi. Nýbygging frá 2025 með sérinngangi og sérnotafleti til suðurs.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Eignin skiptist upp í forstofu, sér geymslu með inngangi að utan, þvottahús, baðherbergi, 2 svefnherbergi og bjart alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús eru í einu opnu rými. Úr stofu er útgengt á steypta verönd til suðurs með skjólveggjum. Gólfhiti er í eigninni, kynt með hitaveitu, og innfelld lýsing í loftum setur fallegan svip á öll rými.

- Nýbygging frá 2025

- Gólfhiti og hitaveita

- Sérinngangur og tvö merkt bílastæði norðan við húsið

- Steypt verönd til suðurs sem snýr að opnu, grónu svæði

SKIPULAG EIGNAR:

Forstofa : Björt, flísalögð, með ljósri innréttingu með fataskápum, skóskáp og bekk með skógeymslu undir. Veggur klæddur ljósum viðarpanel setur nútímalegan svip á rýmið.

Geymsla : Sér geymsla, með inngangi að utan við hlið aðalinngangs. Þar eru inntak hitalagna, hita- og rafmagnsmælar og rafmagnstafla.

Þvottahús : Flísalagt, með innréttingu með vaski og skápum, tengingu fyrir þvottavél og loftræstingu.

Stofa/borðstofa/eldhús : Bjart og opið alrými, með ljósu parketi á gólfi og innfelldri lýsingu í lofti. Gólfsíðir gluggar og hurð út á verönd til suðurs hleypa inn mikilli birtu. Eldhús með stílhreinni, ljósri viðarinnréttingu upp í loft, eyju sem opnast að borðkrók, innbyggðum ofni, helluborði og lýsingu undir efri skápum.

Hjónaherbergi : Rúmgott, parketlagt með fataskápum eftir endilöngum vegg.

Svefnherbergi 2 : Snyrtilegt herbergi við forstofu, parketlagt með glugga til norðurs.

Baðherbergi : Fallegt og flísalagt í hólf og gólf, með rúmgóðri sturtu með glervegg, upphengdu salerni, innréttingu með handlaug, spegilskáp með lýsingu og handklæðaofni.

Verönd : Steypt verönd til suðursrs með skjólveggjum milli íbúða.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband:

Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Skráning eignarinnar skv. HMS:

Fasteignanúmer : F2534398

Stærð : Raðhús, íbúð á einni hæð, 96 m²

Byggingarár : 2025

Byggingarefni : Forsteyptar einingar

Gildandi fasteignamat : 58.400.000 kr.

Brunabótamat : 59.250.000 kr.

Lóð : Sameiginleg leigulóð fjögurra íbúða í eigu Múlaþings, stærð lóðar er 1.190,0 m².

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1 . Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2 . Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3 . Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.

4 . Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði