Breiðamörk 25
810 Hveragerði
Ásett verð: 57.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 78,1 m²
- Herbergi
- 2
- Svefnherbergi
- 1
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2007
- Fermetraverð
- 741.357 kr.
Lýsing
Ath áður auglýst opið hús fellur niður.
Helgafell og Jón G. Sandholt kynna fallega og töluvert endurnýjaða 78,1 m² , tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi við Breiðamörk 25a í Hveragerði. Eignin telur forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi, þvottahús og sérgeymslu. Úr stofu er útgengt á 14,4 m² suðvestursvalir með góðu útsýni.
Breiðamörk 25a er björt og rúmgóð íbúð sem hefur verið töluvert endurnýjuð. Meðal endurbóta má nefna endurnýjað baðherbergi með HTH innréttingu, uppfært eldhús með nýrri borðplötu og eldunartækjum ásamt HTH innréttingu í þvottahúsi. Nýtt parket er á gólfum að undanskildum votrýmum sem eru flísalögð. Íbúðinni fylgir 6,3 m² sérgeymsla á jarðhæð og er hún innifalin í heildarfermetrafjölda eignarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, sími 777-2288 eða jon@helgafellfasteignasala.is
Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi á 14,4 m² suðvestursvalir.
Eldhús er með viðarlitaðri innréttingu, endurnýjaðri borðplötu, vaski og blöndunartækjum ásamt endurnýjuðum ofni, helluborði og uppþvottavél.
Baðherbergi er endurnýjað með flísum á gólfi og veggjum, flísalagðri sturtu, upphengdu salerni og hvítri HTH innréttingu.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Þvottahús er með flísum á gólfi og HTH innréttingu.
Geymsla er 6,3 m² og staðsett á jarðhæð hússins með epoxý á gólfi.
Sameign : Lyfta er í húsinu ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu með epoxý á gólfi.
Húsið er þriggja hæða steinsteypt fjölbýlishús, klætt að hluta með bárustáli. Þak er klætt tjörupappa og þakkantar með álplötum.