Klyfjasel 24

109 Reykjavík

Ásett verð: 146.900.000 kr.

Klyfjasel 24
Tegund
Einbýlishús
Stærð
248,8 m²
Herbergi
9
Svefnherbergi
7
Baðherbergi
2
Byggingarár
1982
Fermetraverð
590.434 kr.

Lýsing

Rúmgott og fjölskylduvænt einbýlishús á þremur hæðum með aukaíbúð í kjallara og bílskúr sem stendur í rólegri botlangagötu við Klyfjasel 24 í Seljahverfinu. Aukaíbúðin er í útleigu. Bílskúr er skv. teikningum innangengur en vegna íbúðarinnar hefur þeim inngangi verið lokað. Fimm rúmgóð herbergi eru í húsinu. Eldhús hefur verið tekið niður vegna breytinga og því miklir möguleikar fyrir kaupendur að gera eldhúsið að sínu.

Eignin er skáð skv. Þjóðskrá Íslands alls 248,8 fm. og þar af er bílskúr 32,9 fm

Nánari lýsing eignar:

Miðhæð, þar er gengið inn á aðalhæð hússins.

Forstofa rúmgóð með góðu skápaplássi, kommóðu, hita í gólfi og flísum á gólfi.

Stofa/borðstofa er rúmgott og opið rými með parketi á gólfi. Léttur veggur er á milli borðstofu og eldhúsins og býður því upp á að opna rýmið frekar. Útgengt er út stofunni út á sólpall með heitum potti.

Eldhús er í dag ekki með neinni innréttingu þar sem eldri innrétting hefur verið tekin niður og býður því upp á að kaupandi gerir eldhúsið nákvæmlega eftir sínum þörfum.

Þvottahús/búr er inn af eldhúsi, vinnuborð með vask og steinn á gólfi. Útgengt er úr þvottahúsinu út á pall á hlið hússins.

Svefnherbergi rúmgott með parketi á gólfi.

Efsta hæð

Svefnherbergi 2 með parket á gólfi. Útgengt er út á svalir úr herberginu með fallegu útsýni. Úr herberginu er opið upp á kalt mögulegt geymsluloft.

Svefnherbergi 3 með parket á gólfi.

Svefnherbergi 4 með parket á gólfi.

Svefnherbergi 5 með parket á gólfi.

Geymsla/vinnnurými með þakglugga og parket á gólfi.

Baðherbergi mjög rúmgott með hornbaðkari, innrétting, gluggi, tengi fyrir þvottavélar og flísar á veggjum og vínil dúka flísar á gólfi.

Gangur með parketi á gólfi.

Aukaíbúð á jarðhæð

Íbúðaraðstaðan á jarðhæð skiptist í stofu/svefnherbergi, eldhús þar sem gert er ráð fyrir þvottavél í innréttingu, og baðherbergi með sturtu.

Bílskúr er innangengur skv. teikningum en vegna auka íbúðar í kjallara er sá inngangur lokaður í dag. Bílskúrinn er með rafmagni, heitt/kalt vatn og upphitaður.

Pallur er við húsið og er útgengt út á hann í stofunni.

Útigeymsla er á palli við inngang hússins.

Næg bílastæði eru við húsið.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is