Orrahólar 7

111 Reykjavík

Ásett verð: 63.900.000 kr.

Orrahólar 7
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
95,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1979
Fermetraverð
671.924 kr.

Lýsing

Betri Stofan fasteignasala kynnir Orrahólar 7 , 6. hæð, íbúð 603. Vel skipulagða 95,1 fermetra 3ja herbergja útsýnisíbúð á 6. hæð með rúmgóðum svölum með svalalokun til suðurs í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi með lyftu við Orrahóla 7 í Reykjavík. Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni (merkt 7c). Afar glæsilegt útsýni er frá íbúðinni yfir Elliðavatn, út á sundin, að Bláfjöllum, Esjunni, Móskarðshnjúkum, Snæfellsnesi, Akrafjalli, Hellisheiði og víðar . Eldhús er með borðkrók. Stofa er mjög rúmgóð og rúmar vel setustofu og borðstofu. Myndavéladyrasími er í húsinu og eftirlitskerfi í sameign. Rafmagnsopnun á hurðun í sameign jarðhæðar. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni eingöngu fyrir þær íbúðir sem eru á hæðinni. Einnig eru tenglar fyrir þvottavél/þurrkara innan baðherbergis íbúðar.

Lóðin er afar snyrtileg með hellulagðri stétt fyrir framan hús. Sérmerkt stæði á lóð. Frágengin og gróin lóð með fallegri aðkomu að húsinu. Sameign er afar snyrtileg með flísum og teppi á sameign. Sameiginlegar svalir á hæðinni til vesturs. Nýleg rafmagnstafla í sameign hússins.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í útivistarparadís við Elliðaárdalinn. Sutt er í verslun og þjónstu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í göngufjarlægð.

Nánari lýsing:

Forstofa : Með fataskápum. Parket á gólfi. Hálfur veggur aðskilur forstofu frá stofu.

Stofa : Er rúmgóð með parketi á gólfi og gluggum til suðurs og austurs. Afar glæsilegt útsýni og útgengi á yfirbyggðar suðursvalir.

Svalir : Eru rúmgóðar og með svalalokun. Glæsilegt útsýni út á Elliðavatn og til fjalla.

Eldhús : Með parket á gólfi og eldri viðar eldhúsinnréttingu. Flísar á milli innréttinga. Borðkrókur og gluggi til norðurs með fallegu útsýni út á sundin og til fjalla.

Hjónaherbergi : Með dúk á gólfi, skáp og glugga til norðurs.

Svefnherbergi : Með dúk á gólfi og glugga til norðurs.

Baðherbergi : Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, salerni, vaskur og gluggi til norðurs.

Hægt er að fá flest húsgögn með í kaupum.

Sérgeymsla : Íbúðar er staðsett á jarðhæð sem er 7,1 fermetrar að stærð.

Bílastæði í bílakjallara: Sérmerkt bílastæði, merkt 7C er í bílakjallara.

Í sameign:

Sameiginlegt þvottaherbergi: fyrir eingöngu þær íbúðir sem eru á hæðinni. Málað gólf, þvottasnúrur, sér tenglar fyrir hverja íbúð og gluggi til norðurs.

Vagna- og hjólageymsla: Er rúmgóð og með máluðu gólfi. Snyrtileg með gluggum og útgengi á baklóð.

Allar nánari upplýsingar veita Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Páll Þórólfsson, sími 8939929 - pall@betristofan.is