Bakkabakki 5 SKIPTI Á EINBÝLI

740 Neskaupstaður

Ásett verð: 66.900.000 kr.

Bakkabakki 5 SKIPTI Á EINBÝLI
Tegund
Raðhús
Stærð
123,400000762939 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2005
Fermetraverð
542.139 kr.

Lýsing

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna:

Bakkabakki 5. Neskaupstað

Vönduð íbúð í fallegu og viðhaldsléttu raðhúsi við Bakkabakka, Neskaupstað.

Eignin er 123,4 fermetrar, (íbúð 92,2 og bílskúr 31,2) auk manngengs þakrýmis.

2 svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með skápum, tvöföldum í minna herberginu og þreföldum með skúffum í stærra herberginu.

Dyr eru úr stærra herberginu út á lóðina.

Stór og góð eldhúsinnrétting er í horni stofunnar. Stofan er nokkuð rúmgóð.

Baðherbergið er rúmgott með rúmgóðri sturtu og flísum á gólfi. Góðar þiljur eru á veggjum í sturturýminu.

Forstofan er með tvöföldum fataskáp.

Rými sem er samkvæmt teikningu þvottahús var gert að vinnuherbergi og þvottaaðstaðan i staðinn höfð í enda bílskúrsins.

Bílskúrinn er flísalagður. Þar er op með fellistiga upp í þakrýmið sem er manngangt.

Gólf í herbergjum og stofu eru með góðu parketi en flísar eru í forstofu, baðherbergi og bílskúr.

Stór sólpallur er framan við íbúðina.