Selvogsgrunn 7

104 Reykjavík

Ásett verð: 59.800.000 kr.

Selvogsgrunn 7
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
62 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1958
Fermetraverð
964.516 kr.

Lýsing

Bjarta og snyrtilega 62,0 fm tveggja herbergja íbúð í kjallara við Selvosgrunn 7 í Reykjavík. Eignin er í snyrtilegu ástandi, með rúmgóðri stofu og eldhúsi í opnu rými, stórum gluggum og fallegri eldhúsinnréttingu.

* Rúmgott alrými með stórum gluggum.

* Snyrtilegt eldhús með hvítri innréttingu og viðarborðplötum.

* Flísalagt baðherbergi með sturtu.

Nánari lýsing

Stofa og eldhús eru saman í björtu og rúmgóðu alrými með stórum gluggum sem veita góða náttúrulega birtu. Á gólfi er parket og eldhúsið er með hvítri innréttingu, viðarborðplötum, innbyggðum bakaraofni og eldunaraðstöðu.

Svefnherbergi er með parketi á gólfi og skápum.

Baðherbergi er flísalagt, með sturtu, salerni, handlaug og snyrtilegri innréttingu.

Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni

Geymsla er skráð 1,8 fm samkvæmt fasteignaskrá.

Selvosgrunnur 7 er í grónu íbúðahverfi í Reykjavík. Eignin er í nálægð við ýmsa þjónustu og útivistarsvæði.

Notast hefur verið við gervigreind til að teikna inn húsgögn á eina mynd í auglýsingu

Nánari upplýsingar veita:

Evert Guðmundsson Lgf. í síma nr 823-3022 eða evert@palssonfasteignasala.is

Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.