Stefnisvogur 44 - íbúð 406

104 Reykjavík

Ásett verð: 80.500.000 kr.

Stefnisvogur 44 - íbúð 406
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
95,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Fermetraverð
843.816 kr.

Lýsing

RE/MAX og REIRVERK kynna í einkasölu:

Vel skipulagðar og vandaðar íbúðir á flottum stað í Vogabyggð. Stefnisvogur 38-46, 104 Reykjavík.

Íbúðir skilast fullbúnar með gólfefnum og með Quartz borðplötum, bæði inn í eldhúsi og inn á baðherbergi. Vönduð heimilistæki, innfeld tæki, ísskápur, frystir og uppþvottavél.

Gólfhiti er í öllum íbúðum með sér dreifikistu fyrir hverja íbúð. Sjálfstæð loftræsti samstaða er fyrir hverja íbúð með inn- og útkasti á lofti.

Byggingaraðili er Reir verk ehf.

Nánari upplýsingar veita:

Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is

Garðar Hólm löggiltur fasteignasali í síma 899-8811 / gardar@remax.is

Nánar um eign: Íbúð nr. 406, Stefnisvogur: 44

Eignin er fjögurra herbergja íbúð á 4. hæð, birt stærð 88,3 fm. Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara, birt stærð 7,1 fm.

Birt heildarstærð séreignar er 95,4 fm.

Hægt er að fá hlutdeildarlán á þessa eign. Hlutdeildarlán er leið til að komast inn á fasteignamarkaðinn fyrir fólk sem á ekki, eða á erfitt með að safna fyrir, fullri útborgun en getur greitt mánaðarlegar afborganir. Þú þarft aðeins að eiga fyrir 5% útborgun.

Upplýsingar um Stefnisvog 38-46

Húsið skilast fullbúið að utan. Húsið er steinsteypt, einangrað og klædd að utan með áli. Þak er viðsnúið, steypt með halla, tvöfalt lag er af eldsoðnum tjörupappa, einangrað ofan á plötu og ferging. Yfirborð svala er klætt með timbri eða hellulagt.

Gluggakerfi íbúða er frá BYKO og er ál-tré. Inngangshurðir í stigaganga eru álhurðir. Sameiginleg lóð verður frágengin skv. teikningum lóðahönnuða. Snjóbræðsla er í helstu göngustígum á lóð.

Húsið er fjögurra til fimm hæða lyftu fjölbýlishús með samtals 82 íbúðum í þrem stigahúsum og einni íbúð með sérinngangi. Bílageymsla er með tengimöguleikum fyrir hleðslu rafbíla. Öllum íbúðum fylgir geymsla auk afnotaréttar af hjóla- og vagnageymslu. Snjóbræðsla er lögð í helstu gönguleiðum utan við hús.

Að verkinu standa eftirtaldir aðilar:

Byggingaraðili hússins er Reir verk ehf.

Arkitekt og aðalhönnuður er Arkþing Nordic ehf.

Verkfræðihönnun, Vektor Verkfræðistofa ehf. sá um hönnun á burðarvirki og lögnum.

Mannvit sá um hljóðhönnun.

Brunahönnun sá um brunahönnun.

Raflagnahönnun, Raflax sá um raflagna- og lýsingahönnun.

Nánari upplýsingar veita:

Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is

Garðar Hólm löggiltur fasteignasali í síma 899-8811 / gardar@remax.is ​​​​​​​

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er almennt 0,8%, en 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða og 1.6% ef um lögaðila er að ræða. Miðast af heildar fasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-